Forsalan er hafin á fyrstu ÍR jólapeysunni. Um er að ræða frábæra og skemmtilega ÍR jólapeysu fyrir alvöru ÍR-inga og Breiðhyltinga. Endilega nælið ykkur í eina ÍR jólapeysu, takmarkað magn í boði!
Afhending: Kaupendur fá skilaboð um miðjan nóvember þegar peysurnar koma til landsins um nákvæman afhendingartíma og stað. Peysurnar eru afhentar, ekki sendar.