Bjartur, rúmgóður og notalegur veislusalur með sæti fyrir allt að 80 manns. Að auki er setusvæði með hornsófa fyrir framan salinn.
Salurinn er á annarri hæð með góðu aðgengi og lyftu. Útgengt er á svalir sem snúa að íþróttasvæðinu, sem gefur fallegt útsýni og skemmtilegt umhverfi fyrir viðburðinn þinn.
Bókað er með því að hringja í síma 587-7080 eða senda póst á bokhald@ir.is
Leigutaki þarf að vera amk 25 ára.